Dæmaskammtur 01 fyrir Aflfræði (EÐL302G) 2015


Nauðsynlegt er að lesa síðuna með UTF-8 kóðun í vafra
  1. Bolta með massa m er hent beint upp með upphafsferð v0 í föstu þyngdarsviði. Hversu langt upp kemst boltinn ef á hann verkar viðnámskraftur í réttu hlutfalli við v2? Finnið markgildið á hæðinni fyrir hverfandi viðnámskraft. Hvernig graf er eðlilegt að gera af mestu hæðinni sem falli af stuðlinum við v2 í viðnámskraftinum? (Munið að best er að nota víddarlausar stærðir á grafi).
  2. Kraftur á ögn er gefinn í kúluhnitum F(r,θ,φ). Finnið hreyfijöfnu agnarinnar.
  3. Vélar- og segllausum bát er sleppt á kyrru vatni með upphafsferð v0. Á bátinn verkar viðnámskraftur F = -F0exp(+βv).
    1. Finnið v(t).
    2. Hversu langt kemst báturinn?
    3. Hve langan tíma tekur ferðin.
    4. Útbúið graf af v(t,β), og annað fyrir x(β,v0)
  4. Dæmi 2-32 í bók með þeirri viðbót að gera graf af θ0k). Hvað þýða niðurstöðurnar?
  5. Dæmi 2-21 í bók.
  6. Lýsið falli í föstu þyngdarsviði með viðnámskrafti í réttu hlutfalli við v4. Athugið hversu lang er hægt að komast innan skynsamlegra marka með greinireikningi.



Viðar Guðmundsson
24.08.2015