Dreifing einkunna í Eðlisfræði 2 V og R vorið 2007

Fjöldi mynda: 2
Gert: Þriðjudaginn 8. maí 2007


thumbs/E-2-RV07.jpg
E-2-RV07.png
thumbs/E-2-VV07.jpg
E-2-VV07.png
Prófið ásamt lausnum er að finna á slóð: http://hartree.raunvis.hi.is/~vidar/Nam/EII_Prof/index.php Í vorprófi 2006 spurðu allmargir nemendur um þýðingu almennra íslenskra orða, því var prófið núna bæði á ensku og íslensku fyrir alla. Það var þó eftirtektarvert að meirihluti nemenda teiknaði láréttu fánastöngina í dæmi 3 lóðrétta. Eins breyttu nokkrir nemendur einangraranum í dæmi 1 í leiðara. Það veldur mér áhyggjum að aðeins örfáir nemendur gátu notað Gauß-setninguna til þess að leysa fyrsta dæmið. Þar kemur ekkert flókið heildi fyrir, en flestir skildu ekki að a-liður bendir á hvar er best að hafa einn hluta Gauß-yfirborðsins. Margir vildu troða Coulomb jöfnunni fyrir rafsviði einnar hleðslu inn í heildið og týndu þannig þræðinum. Aðeins örfáir mundu eftir að heildarhleðslan innan Gauß-yfirborðsins skiptir sköpum um niðurstöðuna. Í lausnum nemenda var spennu og rafsviði oft ruglað saman og talað um hleðslu og afhleðslu spólu. Nemendum í námskeiðunum hefur fækkað verulega og í þetta skiptið þurftum við að skala hráar prófeinkunnir meira til en undanfarin ár. Ég hef áhyggjur af því að sókn nemenda í fyrirlestra og dæmatíma hefur minnkað verulega. Ein skiljanleg afsökun gæti verið að ég set alla fyrirlestra á vefinn, en ég tek líka eftir því að margir nemendur ná ekki í fyrirlestrana fyrr en örfáum dögum fyrir próf. Í fyrirlestrunum er mikið reiknuð dæmi af þessum gerðum sem koma á prófunum og þó nokkrum tíma eytt í að sýna hagnýtingu Gauß-setningarinnar.

Það má örugglega benda okkur kennurum námskeiðisins á all nokkra hluti sem við gætum lagfært, og ég vona að við séum stöðugt að reyna að bæta okkur, en því miður undirstrika niðurstöðurnar enn frekar álit mitt að nemendur átti sig ekki vel á breytingunni milli aðferðarfræðinnar sem beitt er við eðlisfræðinám í framhaldsskóla og HÍ. Námsefnið hefur komið fyrir áður en við fjöllum um það á annan hátt. Eins er ekki að neita að ég hef verulegar áhyggjur af undirbúningi nemenda sem koma til HÍ til náms í verkfræði- og raunvísindadeildum.


Viðar Guðmundsson